Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 10. ágúst 2017 12:39
Magnús Már Einarsson
Gylfi ekki í hóp hjá Swansea um helgina
Mynd: Getty Images
Paul Clement, stjóri Swansea, hefur staðfest að Gylfi Þór Sigurðsson verði ekki í leikmannahópnum gegn Southampton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina.

Tíðindin koma ekki á óvart en Gylfi hefur ekki spilað með Swansea í síðustu æfingaleikjum fyrir mót þar sem mikil óvissa er um framtíð hans.

Everton er að reyna að kaupa Gylfa en viðræður á milli félaganna hafa gengið erfiðlega.

Swansea vill fá 50 milljónir punda fyrir Gylfa en Everton hefur ekki verið tilbúið að greiða þá upphæð ennþá.

Gylfi hefur æft með Swansea að undanförnu en hann fór hins vegar ekki með liðinu í æfingaferð til Bandaríkjanna fyrr í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner