Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 10. ágúst 2017 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Treyja Matta Vill rifin í tætlur
Mynd: Getty Images
Matthías Vilhjálmsson var enn og aftur hetja Rosenborg þegar liðið komst áfram í norska bikarnum í gær.

Hann skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á 1. deildarliðið Jerv.

Matthías hefur verið drjúgur fyrir Rosenborg á tímabilinu, sérstaklega í norsku bikarkeppninni. Hann er búinn að skora átta mörk í fjórum leikjum í bikarkeppninni!

Matthías lenti í afar athyglisverðu atviki í leiknum í gær, en hann var togaður niður í teignum eftir hornspyrnu.

Matthías kallaði eftir því að fá vítaspyrnu, en treyja hans var rifin í tætlur í þessari baráttu.

Hér að neðan má sjá myndband af þessu.



Athugasemdir
banner
banner
banner