Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Davíð Smári: Menn labba ekki nægilega gíraðir inn í seinni hálfleikinn
Heimir: FH liðið er besta liðið í deildinni í að koma til baka
Andri Rúnar: Eftir jöfnunarmarkið vöknum við ekki aftur til lífsins
Sigurvin: Kredit á strákana að finna þetta afl
Chris Brazell: Við voru mikið með boltann en gerðum ekkert með hann
Siggi Höskulds svekktur: Fókusleysi á mikilvægum augnablikum
Magnús Már: Maður hefur séð ýmislegt í boltanum en ég hef sjaldan séð þetta áður
Gunnar Heiðar: Búnir að æfa í sex mánuði fyrir þennan leik
Vigfús Arnar: Var eins og spennustigið væri eitthvað skrítið hjá okkur
Aron Snær: Ætluðum að keyra á þetta og það verður held ég bara okkar mottó
Haraldur Freyr: Mótið tapast ekki eða vinnst í fyrstu umferð
Aníta Dögg bjargaði málunum: Ég lenti klukkan sex í morgun
Árni Freyr hæstánægður eftir sigur ÍR - „Vona að þeir bæti í"
Staða sem á ekki að koma upp - „Átti að spila þangað til klukkan 23:30 í gærkvöldi"
„Við vitum í hverju við erum góðar“
Búin að skora í öllum leikjunum til þessa - „Mín upprunalega staða"
Hugur allra hjá Andreu Marý - „Óþægilegt í alla staði"
„Það var ráðist á hana inn í okkar vítateig“
Skyndiákvörðun að taka skóna af hillunni - „Hvernig gerðist þetta?“
Þriðja tapið í þriðja leiknum - „Óásættanlegt“
   lau 10. október 2015 18:54
Alexander Freyr Tamimi
Birkir Bjarna: Við viljum vinna þennan riðil
Icelandair
Birkir var svekktur með úrslit dagsins.
Birkir var svekktur með úrslit dagsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason, kantmaður íslenska landsliðsins, var að vonum svekktur eftir 2-2 jafntefli Íslands gegn Lettlandi í undankeppni EM 2016 á Laugardalsvelli í dag.

Ísland byrjaði leikinn frábærlega og komst í 2-0, en í seinni hálfleik skoruðu gestirnir snemma og náðu síðan að jafna metin. Urðu lokatölur 2-2.

Birkir segist ekki átta sig á því í fljótu bragði hvað fór úrskeiðis, en að það verði skoðað.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  2 Lettland

„Það er góð spurning, það er erfitt að segja. Við byrjum rosalega vel og vorum að spila mjög góðan sóknarbolta og vorum aggresívir allan fyrri hálfleikinn. Það er mjög erfitt að segja hvað gerðist, við verðum að kíkja á tape-ið og sjá hvað gerðist," sagði Birkir.

„Við viljum vinna þennan riðil og til þess þurfum við að vinna þessa leiki, sérstaklega á móti þessu liði í dag. En aftur á móti voru þeir bara mjög fínir í seinni hálfleik í dag og við ekki nógu góðir. Svona gerist stundum," segir Birkir, sem segir að menn hafi ekki litið á leik dagsins sem neinn vináttuleik þó þeir væru komnir á EM.

„Alls ekki, við viljum vinna þennan riðil og þú sást það alveg í fyrri hálfleik að við komum út á 100 og vorum að spila frábæran fótbolta."
Athugasemdir
banner
banner