Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 10. desember 2017 17:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sviss: Guðlaugur Victor og Rúnar Már spiluðu báðir
Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Victor Pálsson og Rúnar Már Sigurjónsson komu báðir við sögu í svissnesku úrvalsdeildinni þennan sunnudaginn.

Guðlaugur Victor var í byrjunarliði og spilaði allan leikinn þegar Zürich tapaði 2-1 á heimavelli gegn Luzern.

Guðlaugur Victor er lykilmaður í liði Zürich og hefur verið að spila mjög vel á þessu leiktímabili.

Zürich er í þriðja sæti deildarinnar, núna níu stigum á eftir toppliði Young Boys sem gerði jafntefli gegn hinu Íslendingaliðinu í Sviss, Grasshopper, á sama tíma.

Rúnar Már Sigurjónsson kom inn á sem varamaður á 83. mínútu í leiknum sem endaði 1-1.

Grasshopper er í fjórða sæti með 24 stig.

Young Boys 1 - 1 Grasshopper
0-1 Nikola Sukacev ('35)
1-1 Kevin Mbabu ('58)

Zürich 1 - 2 Luzern
0-1 Christian Schneuwly ('11)
1-1 Stephen Odey ('24)
1-2 Stefan Knezevic ('37)
Athugasemdir
banner
banner
banner