Hilmar Árni Halldórsson, miðjumaður Stjörnunnar, og Felix Örn Friðriksson, bakvörður ÍBV, léku báðir sinn fyrsta A-landsleik í dag þegar þeir komu inn sem varamenn gegn Indónesíu.
Hilmar hefur verið einn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar síðustu ár og lagt upp ófá mörkin. Felix leikur með U21-landsliðinu og varð bikarmeistari með ÍBV í fyrra.
Hilmar kom inn sem varamaður á 66. mínútu og Felix fimm mínútum síðar.
Alls sex leikmenn léku sinn fyrsta landsleik fyrir Ísland í dag. Samúel Kári Friðjónsson, Mikael Anderson, Andri Rúnar Bjarnason og Anton Ari Einarsson eru hinir leikmennirnir.
Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn.
Fyrst var það Rúnar Kristinsson, svo Hannes Þór Halldórsson og núna er það Hilmar Árni Halldórsson. Þriðji Leiknismaðurinn til að spila A landsleik #FotboltiNet pic.twitter.com/f9CuwMpMgg
— Maggi Peran (@maggiperan) January 11, 2018
Athugasemdir