Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. febrúar 2018 13:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Pogba er langt frá því að vera frábær leikmaður"
,,Hann er 24 ára og kostaði 89 milljónir punda, samt skilur hann ekki hvernig á að spila stöðuna almennilega.
,,Hann er 24 ára og kostaði 89 milljónir punda, samt skilur hann ekki hvernig á að spila stöðuna almennilega."
Mynd: Getty Images
Graeme Souness er svo sannarlega ekki lestarstjóri í aðdáendaklúbbi Paul Pogba. Hann er ekki hrifinn af leikmanninum og hefur oft og mörgum sinnum látið skoðun sína í ljós.

Hinn 24 ára gamli Pogba er að margra mati mikilvægasti leikmaðurinn í United-liðinu en Souness, sem er fyrrum leikmaður og stjóri Liverpool, er ekki á þeirri skoðun.

„Paul Pogba er fær um frábæra hluti, en hann er langt frá því að vera frábær leikmaður," skrifar Souness í Sunday Times. „Hann kann ekki að axla þá ábyrgð sem kemur með því að vera miðjumaður. Hann er 24 ára og kostaði 89 milljónir punda, samt skilur hann ekki hvernig á að spila stöðuna almennilega."

„Pogba getur ekki verið einn af tveimur miðjumönnum þínum. Þú getur ekki reitt þig á hann. Á móti slakari liðum kemstu kannski upp með það, en ekki á móti sterkari liðunum."

Pogba er byrjunarliði Man Utd sem heimsækir Newcastle á eftir, klukkan 14:15.
Athugasemdir
banner
banner
banner