Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. mars 2018 15:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Bournemouth og Spurs: Nýir bakverðir
Rose kemur inn í byrjunarliðið.
Rose kemur inn í byrjunarliðið.
Mynd: Getty Images
Seinni leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er leikur Bournemouth og Tottenham, hefst hann klukkan 16:00.

Tottenham tapaði í vikunni fyrir Juventus í Meistaradeildinni og féll þar úr leik. Tottenham komst 1-0 yfir í þeim leik en staðan breyttist á stuttum kafla í seinni hálfleik og endaði leikurinn 2-1.

Leikmenn Tottenham eru væntanlega enn í sárum eftir þann leik, en Mauricio Pochettino, stjóri liðsins, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá þeim leik á Wembley.

Serge Aurier kemur inn ásamt Danny Rose og Victor Wanyama. Toby Alderweireld er enn frá vegna meiðsla.

Bournemouth hefur verið á ágætis skriði eftir áramót, en liðið hefur þó ekki unnið í síðustu þremur leikjum sínum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þessi leikur kemur til með að spilast.

Hér að neðan eru byrjunarliðin.

Byrjunarlið Bournemouth: Begovic, Francis, S Cook, Ake, Smith, Stanislas, Daniels, L Cook, Mousset, Wilson.
(Varamenn: Boruc, Surman, Arter, King, Defoe, Fraser, Ibe)

Byrjunarlið Tottenham: Lloris, Aurier, Vertonghen, Sanchez, Rose, Wanyama, Dembele, Eriksen, Alli, Son, Kane.
(Varamenn: Vorm, Trippier, Lamela, Dier, Sissoko, Llorente, Moura)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner