Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 11. október 2017 10:20
Magnús Már Einarsson
Anna Rakel æfir með Gautaborg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anna Rakel Pétursdóttir leikmaður Íslandsmeistaraliðs Þórs/KA hefur fengið boð um að koma til æfinga hjá úrvalsdeildarliði Gautaborg FC í Svíþjóð.

Þetta kemur fram á heimasíðu KA.

Anna Rakel sló í gegn með Þór/KA í sumar en hún var valin í íslenska landsliðið í fyrsta skipti gegn Færeyjum í síðasta mánuði.

Hin 19 ára gamla Anna Rakel hefur skorað átta mörk í 70 deildar og bikarleikjum með Þór/KA á ferlinum.

Gautaborg varð sænskur bikarmeistari 2011 og 2012 og þá komst liðið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu árin 2012 og 2013.
Athugasemdir
banner
banner