Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 12. janúar 2017 08:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Tottenham með augun opin gagnvart Ross Barkley
Er Barkley á leið til Tottenham?
Er Barkley á leið til Tottenham?
Mynd: Getty Images
Tottenham fylgist vel með gangi mála hjá Ross Barkley, leikmanni Everton eftir að Everton eru að nálgast Morgan Schneiderlin og Ishak Belfodil

Framtíð Barkley er í óvissu hjá Everton en samband hans og Ronald Koeman, þjálfara liðsins hefur verið erfitt á tímabilinu.

Everton eru nálægt því að staðfesta kaupin á miðjumanninum Schneiderlin frá Manchester United og framherjanum Ishak Belfodil frá Standard Liege.

Samkeppnin er því orðin mikil fyrir Barkley sem hefur t.d. verið settur utan hóps á tímabilinu og hafa Tottenham áhuga á að klófesta Barkley.

Barkley á 18 mánuði eftir af samningi sínum og þykir það ólíklegt að hann framlengi við Everton og gætu þeir bláklæddu því leitast eftir því að selja leikmanninn
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner