Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 12. febrúar 2018 12:30
Magnús Már Einarsson
Myndband: Framherji Rangers með svakalegt klúður
Alfredo Morelos.
Alfredo Morelos.
Mynd: Getty Images
Alfredo Morelos, framherji Rangers, klúðraði algjöru dauðafæri í leik gegn Ayr í skosku úrvalsdeildinni um helgina.

Alfredo fékk boltann nokkra cm frá markinu en hann náði á ótrúlegan hátt að skófla boltanum yfir.

Atvikið átti sér stað þegar Ayr var 1-0 yfir en það kom þó ekki að sök því Rangers vann 6-1 og Alfredo náði að skora tvö mörk.

Rangers er að berjast við Kára Árnason og félaga í Aberdeen um 2. sætið í Skotlandi en Aberdeen er þremur stigum á undan í augnablikinu. Celtic er síðan með átta stiga forskot á toppnum.

Hér að neðan má sjá klikkið hjá Alfredo.



Athugasemdir
banner
banner
banner