Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   mið 12. nóvember 2014 22:44
Magnús Már Einarsson
skrifar frá Brussel
Aron Einar: Segir sitt að Courtois var valinn bestur
Icelandair
Aron Einar var sáttur með þá sem komu inn.
Aron Einar var sáttur með þá sem komu inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði Íslands, var nokkuð sáttur þrátt fyrir 3-1 tap gegn Belgíu í vináttulandsleik í kvöld.

Íslenska liðið átti fínan leik en þurfti samt sem áður að lúta í lægra haldi gegn sterku liði heimamanna, sem spilaði á sínum sterkustu mönnum á meðan Ísland gerði talsverðar breytingar.

,,Þetta var erfitt. Við vörðumst vel og náðum að skapa okkur nokkur góð færi líka og það var jákvætt," sagði Aron Einar eftir leikinn.

,,Það voru leikmenn þarna sem voru að gera vel í kvöld sem hafa ekki verið að spila mikið, það var virkilega jákvætt. Lars og Heimir sögðu fyrir leik að þeir væru að fara að gera breytingar og leyfa leikmönnum sem ekki hafa spilað mikið að spila í kvöld, og mér fannst þeir gera vel."

,,Mér sýndist Courtois fá mann leiksins í belgíska sjónvarpinu, það sýnir það að við vorum að skapa færi. Hann hélt okkur úr leiknum í rauninni. Aftur á móti var Ömmi frábær í fyrri hálfleik, en við náðum að skapa okkur færi og það var jákvætt."

Athugasemdir
banner
banner
banner