Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. janúar 2017 07:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Fetar Drogba í fótspor Ronaldo?
Didier Drogba
Didier Drogba
Mynd: Getty Images
Brasilíska félagið Corinthians hefur boðið Didier Drogba samning.

Drogba hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Montreal Impact á síðasta ári en nú getur hann lengt ferilinn í Brasilíu.

Hann er nú orðinn 38 ára gamall og hann hefur áhuga á að halda áfram að spila fótbolta.

Hans fyrrum félag, Marseille hefur áhuga á að fá hann í sínar raðir en Drogba ku vilja halda á vit ævintýranna í Brasilíu.

Brasilíska goðsögnin Ronaldo, spilaði með Corinthians á sínum tíma og gæti Drogba því fetað í fótspor hans.
Athugasemdir
banner
banner