Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 13. janúar 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Mkhitaryan á mark mánaðarins
Mkhitaryan skorar markið.
Mkhitaryan skorar markið.
Mynd: Getty Images
Henrikh Mkhitaryan, leikmaður Manchester United, hefur verið verðlaunaður fyrir mark desember mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Mkhitaryan skoraði með mögnuðu sporðdrekasparki í 3-1 sigri á Sunderland á öðrum degi jóla.

Eftir leik sagði Mkhitaryan að þetta væri flottasta mark sem hann hefði skorað á ferlinum.

Olivier Giroud, framherji Arsenal, skoraði nokkuð líkt mark í sigri á Crystal Palace en sá leikur var 2. janúar. Giroud á eftir að gera sterkt tilkall til að fá verðlaun fyrir mark mánaðarins í janúar.

Hér að neðan má sjá markið.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner