Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. apríl 2018 20:56
Ingólfur Stefánsson
Spánn: Betis með mikilvægan sigur
Moron skoraði
Moron skoraði
Mynd: Getty Images
Girona 0 - 1 Betis
0-1 Loren Moron ('36 )



Real Betis vann mikilvægan sigur í Evrópubaráttunni þegar liðið heimsótti Girona í kvöld.

Girona hefðu getað jafnað Villareal að stigum í 6. sæti deildarinnar og minnkað forskot Betis í 5. sætinu niður í tvö stig með sigri.

Loren Moron kom Betis yfir eftir 36 mínútna leik eftir sendingu frá Joaquin.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og Betis því í ansi þægilegri stöðu í fimmta sætinu fimm stigum meira en Villareal sem eiga leik til góða gegn Sevilla á morgun.
Athugasemdir
banner
banner