Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 14. mars 2024 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mainoo ekki valinn í A-landsliðið
Kobbie Mainoo.
Kobbie Mainoo.
Mynd: Getty Images
Kobbie Mainoo verður ekki í landsliðshópi Englands sem verður tilkynntur í dag.

Fréttamaðurinn Rob Dorsett á Sky Sports greinir frá þessu en við þessi tíðindi minnka líkurnar til muna á að Mainoo verði með Englandi á EM í sumar.

Mainoo, sem er 18 ára gamall miðjumaður, hefur spilað stórkostlega með Manchester United að undanförnu.

Hann hefur verið algjör lykilmaður fyrir Man Utd en fær ekki að hoppa upp í A-landslið Englands. Hann mun hins vegar vera með U21 landsliðinu í komandi verkefni.

England mætir Brasilíu og Belgíu í vináttulandsleikjum núna seinna í mars.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner