Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 14. mars 2024 21:08
Ívan Guðjón Baldursson
Salah kominn með 20 mörk sjöunda tímabilið í röð
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah er í byrjunarliði Liverpool sem er að rúlla yfir Sparta Prag í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar þessa stundina.

Salah skoraði eitt og lagði tvö mörk upp í fyrri hálfleik og bætti við þriðju stoðsendingunni í síðari hálfleik.

Markið sem Salah skoraði er það tuttugasta á tímabilinu í öllum keppnum og er þetta sjöunda tímabilið í röð sem Egyptinn afrekar þetta.

Hann er þar með fyrsti leikmaðurinn í sögu Liverpool til að skora 20 mörk á tímabili sjö tímabil í röð.

Salah getur hæglega skorað yfir 30 mörk á tímabilinu, þar sem Liverpool á enn eftir að spila nóg af leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner