Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 14. apríl 2018 07:00
Ingólfur Stefánsson
Þórsarar framleiða sérstaka HM treyju
Mynd: Kaffið.is
Knattspyrnudeild Þórs á Akureyri hefur látið útbúa sérstaka HM-treyju í tilefni heimsmeistaramótsins í Rússlandi næsta sumar. Þetta kemur fram á vefnum Kaffið.is

Treyjan er blanda af Þórstreyju og treyju íslenska landsliðsins. Á treyjunni er mynd af Aroni Einari fyrirliða landsliðsins sem lék áður með Þór og hún er merkt númer 17 sem er númer Arons.

Sala á treyjunni hófst í gær á vefsíðunni 603.is en treyjan er fáanleg í öllum stærðum. Óðinn Svan Óðinsson formaður knattspyrnudeildar Þórs segist gríðarlega ánægður með útkomuna.

„Við Þórsarar erum auðvitað stoltir af okkar manni og vildum gera eitthvað sérstakt. Það er ekki á hverjum degi sem Þórsari leiðir lið á HM,“ segir Óðinn í samtali við Kaffið.is
Athugasemdir
banner
banner