Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 14. október 2017 08:30
Elvar Geir Magnússon
Conti: Mjög svekkjandi að missa af leiknum gegn Inter
Conti náði aðeins að leika tvo leiki fyrir Milan áður en hann meiddist illa.
Conti náði aðeins að leika tvo leiki fyrir Milan áður en hann meiddist illa.
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Andrea Conti segir að það sé hundsvekkjandi að geta ekki spilað fyrir AC Milan í grannaslagnum gegn Inter annað kvöld. Conti spilar ekki meira á þessu ári eftir meiðsli á hné í síðasta mánuði.

„Ég get ekki komið þessu í orð... en þetta er hluti af fótboltanum. Það hefur verið erfitt að fylgjast með liðsfélögunum undirbúa leikinn á meðan ég hef verið í meðhöndlun," segir Conti.

„Fyrstu fimmtán dagarnir eftir aðgerðina voru erfiðastir. Ég gat ekki hreyft mig. Ég þurfti hjálp við að fara í sturtu. En nú er erfiðasti kaflinn að baki."

Conti er 23 ára en hann kom til Milan frá Atalanta í sumar.

„Það var ekki auðvelt að yfirgefa Atalanta. Ég ólst upp þarna og það var fjölskyldustemning. Það hefur samt lengi verið draumur minn að spila fyrir Milan og ég gat ekki hafnað þessu tækifæri," segir Conti.

Leikur Inter og Milan mætast annað kvöld 18:45 en leikurinn verður sýndur beint á SportTv.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 33 17 7 9 59 39 +20 58
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Frosinone 34 7 10 17 43 63 -20 31
17 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
18 Udinese 33 4 16 13 31 50 -19 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 34 2 9 23 26 73 -47 15
Athugasemdir
banner
banner
banner