Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 14. október 2017 14:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp segir að Oxlade-Chamberlain sé ekki tilbúinn
Mynd: Getty Images
Alex Oxlade-Chamberlain var í enn eitt skiptið á varamannabekknum hjá Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Liverpool borgaði 40 milljónir punda til að fá Oxlade-Chamberlain frá Arsenal á lokadegi félagsskiptagluggans. Uxinn hefur ekki enn byrjað leik fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Hann kom inn á sem varamaður þegar Liverpool gerði markalaust jafntefli gegn Manchester United í dag.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var spurður að því fyrir leikinn í dag af hverju Chamberlain væri ekki að byrja, sérstaklega í ljósi þess að Sadio Mane væri meiddur.

„Hann þarf bara aðeins meiri tíma til að aðlagast. Alltaf þegar hann tekur næsta skref kemur landsleikjahlé," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner