Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. mars 2018 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: FH skoraði þrjú gegn Stjörnunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 0 - 3 FH
0-1 Marjani Hing-Glover ('7)
0-2 Birta Stefánsdóttir ('73)
0-3 Diljá Ýr Zomers ('90)

Stjarnan og FH mættust í Kórnum í eina leik dagsins í Lengjubikar kvenna.

Marjani Hing-Glover kom FH yfir snemma leiks og voru Hafnfirðingar yfir í hálfleik.

Bæði lið fengu færi í leiknum og voru Stjörnustúlkur óheppnar að skora ekki, en Birta Stefánsdóttir tvöfaldaði forystu FH í síðari hálfleik.

Diljá Ýr Zomers innsiglaði sigur FH á lokamínútum leiksins og fyrstu stig liðsins í Lengjubikarnum staðreynd eftir þrjá tapleiki í röð. Stjarnan vann í fyrstu umferð en er nú búið að tapa síðustu tveimur.
Athugasemdir
banner