Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 15. maí 2017 21:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndir: Eiginkona Conte grét í stúkunni
Conte og eiginkona hans, Elisabetta Muscarello.
Conte og eiginkona hans, Elisabetta Muscarello.
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefur nokkrum sinnum rætt um það hversu erfitt lífið hefur verið í Lundúnum. Hann hefur verið án eiginkonu sinnar og barna til að byrja með.

Conte hefur gert frábæra hluti með Chelsea á tímabilinu, hann er búinn að gera þá að meisturum og koma þeim í úrslit bikarsins.

Elisabetta Muscarello, eiginkona Conte, var mætt á völlinn í kvöld og fylgdist með lærisveinum Conte leggja Watford að velli, 4-3.

Conte fékk höfðinglegar móttökur á Brúnni í kvöld, og við það brutust tilfinningarnar út hjá eiginkonu hans sem sat upp í stúku.

Antonio Conte og Elisabetta Muscarello giftu sig árið 2013, en búist er við því að hún flytji til Lundúna í sumar.

Hér að neðan má sjá myndir af því þegar Muscarello grét í stúkunni.





Athugasemdir
banner
banner
banner
banner