Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Davíð Smári: Menn labba ekki nægilega gíraðir inn í seinni hálfleikinn
Heimir: FH liðið er besta liðið í deildinni í að koma til baka
Andri Rúnar: Eftir jöfnunarmarkið vöknum við ekki aftur til lífsins
Sigurvin: Kredit á strákana að finna þetta afl
Chris Brazell: Við voru mikið með boltann en gerðum ekkert með hann
Siggi Höskulds svekktur: Fókusleysi á mikilvægum augnablikum
Magnús Már: Maður hefur séð ýmislegt í boltanum en ég hef sjaldan séð þetta áður
Gunnar Heiðar: Búnir að æfa í sex mánuði fyrir þennan leik
Vigfús Arnar: Var eins og spennustigið væri eitthvað skrítið hjá okkur
Aron Snær: Ætluðum að keyra á þetta og það verður held ég bara okkar mottó
Haraldur Freyr: Mótið tapast ekki eða vinnst í fyrstu umferð
Aníta Dögg bjargaði málunum: Ég lenti klukkan sex í morgun
Árni Freyr hæstánægður eftir sigur ÍR - „Vona að þeir bæti í"
Staða sem á ekki að koma upp - „Átti að spila þangað til klukkan 23:30 í gærkvöldi"
„Við vitum í hverju við erum góðar“
Búin að skora í öllum leikjunum til þessa - „Mín upprunalega staða"
Hugur allra hjá Andreu Marý - „Óþægilegt í alla staði"
„Það var ráðist á hana inn í okkar vítateig“
Skyndiákvörðun að taka skóna af hillunni - „Hvernig gerðist þetta?“
Þriðja tapið í þriðja leiknum - „Óásættanlegt“
   þri 15. nóvember 2016 20:42
Jóhann Ingi Hafþórsson
Viðar: Mjög ósáttur með að hafa ekki náð að skora í dag
Icelandair
Viðar Örn Kjartansson spilaði 70 mínútur í dag.  Hér er hann fyrir leik.
Viðar Örn Kjartansson spilaði 70 mínútur í dag. Hér er hann fyrir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
„Ég er mjög ósáttur með að hafa ekki náð að skora í dag en mér fannst leikurinn góður," var það fyrsta sem Viðar Örn Kjartansson, framherji landsliðsins sagði eftir 2-0 sigur á Möltu í vináttuleik í dag.

Viðar komst í fín færi í leiknum en hann náði ekki að nýta þau. Hann var hins vegar sáttur við að liðið og hann sjálfur voru að skapa færi.

„Það er oft fyrsta markið sem skiptir máli í svona leik, við náum að skora tvö mörk en áttum að skora mikið fleiri."

„Ég er sáttur við leikinn en við hefðum átt að skora fleiri mörk í dag og þar á meðal ég. Ég var nálægt því og maður er alltaf ánægður þegar maður fær færi, maður þarf að gera aðeins betur," sagði Viðar en þetta var síðasti landsleikur Íslands á árinu.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner