Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 15. nóvember 2017 15:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp lagður inn á spítala
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp hefur verið lagður inn á spítala í Liverpool.

Klopp gat ekki stýrt Liverpool á æfingu í dag þar sem hann var veikur, en í kjölfarið lagði hann sjálfan sig inn á spítala.

Á spítalanum var Klopp sendur í skoðanir, en enn hefur ekki verið gefið út hvað amar að honum.

Klopp verður væntanlega sendur heim í kvöld.

Liverpool leikur gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn, en ekki er vitað hvort Klopp geti stýrt Liverpool í þeim leik. Liverpool er sem stendur í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner