Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. nóvember 2017 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar: England er varnarsinnaðara en flest önnur lið
Neymar í leiknum í gær.
Neymar í leiknum í gær.
Mynd: Getty Images
„Við reyndum allt," sagði Neymar eftir markalaust jafntefli í vináttulandsleik Brasilíu og Englands í gær.

„Við vorum meira með boltann og fengum færi til að skora, en við vissum líka að England væri með lið sem væri varnarsinnaðara en mörg önnur lið," sagði Neymar við blaðamenn.

Neymar var heilt yfir ánægður með leikinn.

„Ég er ánægður með það hvernig við spiluðum, við gáfum engin færi á okkur og reyndum að skapa færi til að skora. Við gerðum þeim erfitt fyrir og það er gott fyrir okkur."

„Þetta var góð æfing fyrir okkur, að sjá hvað vantar upp á svo við getum unnið. Ég er ánægður að við skyldum enda árið á góðum nótum. Það er það eina sem skiptir máli."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner