Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. nóvember 2017 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Paulinho: Messi og Neymar sannfærðu mig
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Paulinho segir að Lionel Messi og Neymar hafi haft mikið að gera með ákvörðun sína að ganga í raðir Barcelona
frá kínverska félaginu Guangzhou Evergrande í sumar.

Neymar yfirgaf Barcelona og fór til Parísar en hann gaf Barcelona kveðjugjöf, landa sinn Paulinho.

„Þegar viðræðurnar voru í gangi, þá sagði Neymar mér að fara til Barcelona," sagði Paulinho.

„Hann sagði að ég yrði ánægður í Barcelona og ég myndi kunna vel við mig hérna."

„Hann hvatti mig áfram og þrátt fyrir að hann væri á förum, þá hafði hann mikil áhrif á ákvörðun mína."

Messi spilaði líka stórt hlutverk.

„Þegar við (Brasilía) vorum að spila gegn Argentínu, kom hann
(Messi) upp að mér og sagði mér að koma til Barcelona. Ég sagðist ætla að koma ef hann vildi fá mig."


Paulinho hefur leikið 14 sinnum fyrir Börsunga og skorað þrjú mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner