Keflavík 2 - 2 Fjölnir
1-0 Markaskorara vantar ('39)
2-0 Markaskorara vantar ('69)
2-1 Bergsveinn Ólafsson ('79)
2-2 Þórir Guðjónsson ('95, víti)
1-0 Markaskorara vantar ('39)
2-0 Markaskorara vantar ('69)
2-1 Bergsveinn Ólafsson ('79)
2-2 Þórir Guðjónsson ('95, víti)
FJölnir rétt náði jafntefli gegn Keflavík er liðin mættust í Reykjaneshöllinni í Lengjubikarnum í kvöld.
Heimamenn komust yfir í fyrri hálfleik og tvöfölduðu forystuna í þeim síðari, áður en Bergsveinn Ólafsson minnkaði muninn þegar ellefu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Jöfnunarmark Fjölnis kom ekki fyrr en í uppbótartíma, þegar Þórir Guðjónsson skoraði úr vítaspyrnu á 95. mínútu.
Bæði lið eru með eitt stig í Lengjubikarnum. Þetta var annar leikur Keflvíkinga en fyrsti leikur Fjölnis.
Athugasemdir