Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   þri 16. apríl 2013 11:37
Magnús Már Einarsson
Búið að selja yfir 7000 miða á leik Portsmouth og ÍBV
Darren Anderton spilar með Portsmouth í kvöld.
Darren Anderton spilar með Portsmouth í kvöld.
Mynd: Getty Images
Portsmouth fær ÍBV í heimsókn á Fratton Park í kvöld en Eyjamenn hafa verið í æfingaferð á Englandi undanfarna daga.

Búið er að selja yfir 7000 miða á leikinn og er reiknað með það seljist einnig nokkur þúsund miðar í dag en þetta kemur fram á eyjamenn.com.

Allur ágóði af leiknum rennur í styrktarsjóð Portsmouth en félagið hefur átt í miklum fjárhagserfiðleikum undanfarin ár.

David James mun leika sinn fyrsta leik með ÍBV í kvöld og þá ætlar Hermann Hreiðarsson þjálfari liðsins að spila í vörninni.

Sky greindi síðan frá því í gær að James og Hermann muni leika síðustu 20 mínútur leiksins með sínum gömlu félögum í Portsmouth.

Darren Anderton, Svetoslav Todorov, Mark Kelly, Linvoy Primus og Vince Hilaire ætla einnig að leika með sínum gömlu félögum í Portsmouth.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner