Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   þri 16. apríl 2013 15:15
Elvar Geir Magnússon
Könnun: Suarez bestur á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Luis Suarez hefur verið besti leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni að mati lesenda Fótbolta.net.

Úrúgvæinn hlaut yfirburðarkosningu í könnun sem var á forsíðunni.

Áhugavert er að Fótbolti.net stóð fyrir samskonar könnun í febrúar en þá varð Robin van Persie fyrir valinu. Hollenski sóknarmaðurinn hefur lítið skorað síðan þá.

Hver hefur verið bestur í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili?
49% Luis Suarez (3910)
18% Robin van Persie (1417)
16% Gareth Bale (1293)
7% Santi Cazorla (560)
6% Juan Mata (461)
3% Michu (216)
2% Einhver annar (147)

Taktu þátt í nýrri könnun sem er á forsíðunni og spurt er hvaða lið muni hampa Meistaradeildartitlinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner