FH fær Fjölni í heimsókn í Kaplakrikann núna kl 19:15.
Textalýsingar dagsins:
17:00 Fylkir - ÍBV
19:15 FH - Fjölnir
20:00 Víkingur Ó. - ÍA
Textalýsingar dagsins:
17:00 Fylkir - ÍBV
19:15 FH - Fjölnir
20:00 Víkingur Ó. - ÍA
Liðin byrjuðu mótið vel og unnu fyrstu tvo leiki sína. Þau töpuðu hins vegar bæði í síðustu umferð og eru þau því bæði með sex stig en aðeins Stjarnan og Víkingur Ó. eru með fleiri stig.
FH á góðar minningar frá þessari viðureign í fyrra, þeir tryggðu sér þá íslandsmeistaratitilinn eftir 2-1 sigur á Fjölni í Krikanum. Þá skoraði Emil Pálsson sigurmarkið en hann spilaði einmitt með Fjölni, fyrri part síðustu leiktíðar.
Byrjunarliðin eru komin í hús. Hjá FH kemur Steven Lennon inn í liðið í staðin fyrir Atla Viðar Björnsson. Bergsveinn Ólafsson, fyrrum fyrirliði Fjölnis spilar deildarleik á móti Fjölni í fyrsta skipti.
Fjölnismenn gera enga breytingu á liðinu sem tapaði fyrir ÍA í síðustu umferð.
Byrjunarlið FH:
Gunnar Nielsen
Bergsveinn Ólafsson
Steven Lennon
Emil Pálsson
Þórarinn Ingi Valdimarsson
Davíð Þór Viðarsson
Atli Guðnason
Bjarni Þór Viðarsson
Kassim Doumbia
Böðvar Böðvarsson
Jonathan Hendrickx
Byrjunarlið Fjölnis:
Þórður Ingason
Mario Tadejevic
Daniel Ivanovski
Gunnar Már Guðmundsson
Tobias Frank Salquist Nielsen
Viðar Ari Jónsson
Igor Jugovic
Martin Lund Pedersen
Marcus Solberg Mathiasen
Ólafur Páll Snorrason
Guðmundur Karl Guðmundsson
Textalýsingar dagsins:
17:00 Fylkir - ÍBV
19:15 FH - Fjölnir
20:00 Víkingur Ó. - ÍA
Athugasemdir