Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 16. maí 2016 22:51
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markvörslurnar: Einar fór á kostum gegn ÍA
Einar Hjörleifsson er einnig frábær á milli stanganna í Futsal.
Einar Hjörleifsson er einnig frábær á milli stanganna í Futsal.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einar Hjörleifsson átti mjög góðan leik er Ólafsvíkingar lögðu ÍA að velli með þremur mörkum gegn engu í Pepsi-deildinni fyrr í kvöld.

Ólsarar voru betri í leiknum en Skagamenn fengu þó sinn skerf af færum en Einar stóð vaktina vel á milli stanganna.

Á vefsíðu Vísis er hægt að sjá þrjár bestu markvörslur Einars í leiknum, þar sem hann ver meðal annars vítaspyrnu og frákast frá Garðari Bergmanni Gunnlaugssyni.

Skagamenn komust aftur nálægt því að skora í uppbótartíma en þá bjargaði Pontus Nordenberg á marklínunni.
Athugasemdir
banner
banner