Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. desember 2017 18:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Moyes: Var pirraður út í Marko
Mynd: Getty Images
„Úrslitin fóru með okkur og þetta er mikilvægur sigur," sagði David Moyes, stjóri West Ham, eftir 3-0 sigur á Stoke í ensku úrvalsdeildinni þennan laugardaginn.

„Það er stígandi í okkur leik og við erum að sýna það."

West Ham fékk vítaspyrnu eftir tæpar 20 mínútur sem Mark Noble skoraði úr. Um hana sagði Moyes:

„Varnarmaðurinn gaf dómaranum tækifæri til þess að taka ákvörðun. Ég væri vonsvikinn að fá á mig svona vítaspyrnu en stundum er þetta svona," sagði Moyes.

„Við klúðruðum góðum færum. Ég var pirraður út í Marko (Arnautovic) í hálfleik þar sem hann misnotaði góð færi. Ég sagði við hann í hálfleik að hann myndi skora, sem hann svo gerði."
Athugasemdir
banner
banner
banner