Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 17. mars 2017 13:34
Magnús Már Einarsson
Laugardalsvelli
Íslenski landsliðshópurinn - Fimm nýir koma inn
Icelandair
Viðar Ari Jónsson er í hópnum en hann spilaði sinn fyrsta landsleik í janúar.
Viðar Ari Jónsson er í hópnum en hann spilaði sinn fyrsta landsleik í janúar.
Mynd: Getty Images
Rúrik er mættur í hópinn á nýjan leik.
Rúrik er mættur í hópinn á nýjan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry er í hópnum.  Hér skorar hann gegn Kína í janúar.
Kjartan Henry er í hópnum. Hér skorar hann gegn Kína í janúar.
Mynd: Getty Images
Heimir Hallgrímsson hefur tilkynnt íslenska landsliðshópinn sem mætir Kosóvó í undankeppni HM á föstudaginn í næstu viku og Írlandi í vináttuleik þann 28. mars.

Alfreð Finnbogason, Birkir Bjarnason, Jóhann Berg Guðmundsson Kolbeinn Sigþórsson og Theodór Elmar Bjarnason eru allir fjarri góði gamni í leikjunum.

Arnór Ingvi Traustason og Kári Árnason hafa einnig verið að glíma við meiðsli en þeir eru báðir í hópnum.

Samtals eru fimm nýir leikmenn í hópnum síðan í síðasta leik í undankeppninni gegn Króatíu í nóvember.

Rúrik Gíslason snýr aftur í hópinn en hann spilaði síðast landsleik í júní árið 2015.

Viðar Ari Jónsson og Óttar Magnús Karlsson eru báðir í hópnum í mótsleik í fyrsta skipti en þeir léku sína fyrstu landsleiki fyrr á þessu ári. Viðar samdi á dögunum við Brann í Noregi en Óttar gekk til liðs við Molde fyrr í vetur.

Aron Sigurðarson, leikmaður Tromsö, er einnig í hóp í fyrsta skipti í mótsleik og þá kemur Kjartan Henry Finnbogason inn í hópinn en hann hefur ekki verið í hóp í mótsleikjum síðan árið 2011.

Heimir velur 24 manna hóp fyrir leikina en auk leikmanna sem eru fjarverandi þá dettur Rúnar Már Sigurjónsson út frá því gegn Króatíu í nóvember.

Markmenn
Hannes Þór Halldórsson (Randers FC)
Ögmundur Kristinsson (Hammarby)
Ingvar Jónsson (Sandefjord)

Varnarmenn
Birkir Már Sævarsson (Hammarby)
Ragnar Sigurðsson (Fulham)
Kári Árnason (Omonia)
Ari Freyr Skúlason (Lokeren)
Sverrir Ingi Ingason (Granada)
Hörður Björgvin Magnússon (Bristol City)
Hólmar Örn Eyjólfsson (Maccabi Haifa)
Viðar Ari Jónsson (Brann)

Miðjumenn
Aron Einar Gunnarsson (Cardiff City)
Emil Hallfreðsson (Udinese)
Gylfi Þór Sigurðsson (Swansea City)
Ólafur Ingi Skúlason (Karabukspor)
Rúrik Gíslason (Nurnberg)
Arnór Ingvi Traustason (Rapid Vín)
Elías Már Ómarsson (IFK Gautaborg)
Aron Sigurðarson (Tromsö)

Sóknarmenn
Jón Daði Böðvarsson (Wolves)
Viðar Örn Kjartansson (Maccabi Tel Aviv)
Björn Bergmann Sigurðarson (Molde)
Kjartan Henry Finnbogason (Horsens)
Óttar Magnús Karlsson (Molde)

Fjarverandi
Alfreð Finnbogason - Meiddur
Birkir Bjarnason - Meiddur
Jóhann Berg Guðmundsson - Meiddur
Kolbeinn Sigþórsson - Meiddur
Theodór Elmar Bjarnason - Í leikbanni
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner