Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 17. mars 2017 22:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikar kvenna: Keflavík aftur á sigurbraut
Sveindís Jane skoraði seinna mark Keflavíkur.
Sveindís Jane skoraði seinna mark Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn - B-deild kvenna
Keflavík 2 - 0 Selfoss
1-0 Sólveig Lind Magnúsdóttir ('42 )
2-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('82 )

Það var einn leikur í Lengjubikar kvenna í kvöld. Keflavík og Selfoss áttust við í Reykjaneshöllinni, en þessi leikur var í B-deild.

Bæði þessi lið munu leika í 1. deild kvenna í sumar og því var um áhugaverðan slag að ræða. Keflavík var nálægt því að komast upp síðasta sumar á meðan Selfoss féll úr Pepsi-deildinni.

Það fór þannig í kvöld að Keflavík hafði betur. Sólveig Lind Magnúsdóttir kom Keflvíkingum yfir rétt fyrir leikhlé og hin stórefnilega Sveindís Jane Jónsdóttir setti annað markið undir lokin.

Lokatölur urðu 2-0, en Keflavík er með sex stig í öðru sæti B-deildar. Selfoss er án stiga á botninum.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner