Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 17. apríl 2018 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pascal Gross: Sýndum það í kvöld að það er mikill karakter í liðinu
Mynd: Getty Images
Pascal Gross skoraði jöfnunarmark Brighton úr vítaspyrnu þegar þeir mættu Tottenham í kvöld þar sem niðurstaðan var 1-1 jafntefli.

„Þetta var mjög mikilvægt stig því við erum ekkert í mjög góðri stöðu," sagði Gross en Brighton er í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 36 stig.

„Við börðumst fyrir þessu og sýndum það í kvöld að það er mikill karakter í liðinu, við áttum góðan leik gegn góðu liði."

„Við vitum að við þurfum fleiri stig en við erum nokkuð rólegir þar sem það eru nokkrir leikir eftir enn, það getur allt gerst í fótbolta en við náðum í stig í dag og verðum að halda áfram á þessari braut," sagði Gross.




Athugasemdir
banner