Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 17. apríl 2018 15:12
Magnús Már Einarsson
Síðasti miðasölugluggi HM opnar á morgun
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Síðasti miðasöluglugginn fyrir HM 2018 í Rússlandi hefst á morgun, 18. apríl, og verður opinn til 15. júlí.

Glugginn opnar klukkan 09:00 að íslenskum tíma, eða klukkan 12:00 í Moskvu.

Um er að ræða fyrstur kemur, fyrstur fær og verður salan opin svo lengi sem miðar eru til.

Hægt verður að kaupa miða á alla leiki en ekki er ljóst hversu margir miðar verða í boði.

Mikil eftirspurn hefur verið eftir miðum á leik Íslands og Argentínu í Moskvu þann 16. júní en minni eftirspurn hefur verið eftir miðum á leiki Íslands við Nígeríu þann 22. júní og Króatíu 26. júní.

Smelltu hér til að fara á miðasöluvef FIFA

Leikir Íslands á HM:
16. júní Argentína - Ísland (Moskva)
22. júní Nígería - Ísland (Volgograd
26. júní Ísland - Króatía (Rostov)
Athugasemdir
banner
banner
banner