Crystal Palace hefur nú bæst við hóp liða sem eltast við að fá enska miðjumanninn Jack Wilshere í sínar raðir.
Auk Crystal Palace eru West Ham, Wolves og Everton auk liða á Ítalíu sögð hafa áhuga á leikmanninum.
Honum á að hafa verið boðið samningur sem hljóðar upp á 110 þúsund pund á viku auk 65 þúsund punda sigur bónus.
Hins vegar hefur Unai Emery sagt honum að hann geti ekki búist við byrjunarliðssæti í liðinu og gæti hann því hugsað sér til hreyfings.
Wilshere var ekki valinn í lokahóp enska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi sem er nú í gangi.
Athugasemdir