Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fim 17. júlí 2014 10:25
Elvar Geir Magnússon
Özil segir takk með því að borga fyrir aðgerðir 23 barna
Vel gert Mesut Özil!
Vel gert Mesut Özil!
Mynd: Getty Images
Mesut Özil, leikmaður Arsenal og þýska landsliðsins, er ánægður með gestrisni Brasilíumanna á HM og hefur ákveðið að þakka fyrir sig með því að borga fyrir aðgerðir 23 brasilískra barna.

Eitt barn á hvern leikmann í þýska landsliðshópnum en eins og allir vita stóð Þýskaland uppi sem sigurvegari mótsins.

Daginn eftir heimkomuna frá Brasilíu tilkynnti Özil þetta á Facebook-síðu sinni.

Hver leikmaður í þýska liðinu fær um 300 þúsund evrur í bónusgreiðslur fyrir sigurinn. Þýskaland vann gestgjafana í Brasilíu 7-1 í undanúrslitum svo það ætti ekki að koma mörgum á óvart að Özil hafi verið þetta ánægður með gestrisnina!




Athugasemdir
banner