Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 17. október 2014 15:13
Magnús Már Einarsson
Hallgrímur Mar í Víking (Staðfest)
Hallgrímur Mar eftir undirskriftina í dag.
Hallgrímur Mar eftir undirskriftina í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Hallgrímur Mar Steingrímsson skrifaði undir þriggja ára samning við Víking nú rétt í þessu. Víkingar höfnuðu í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar í sumar.

Hallgrímur kemur til Víkings frá KA en samningur hans þar er að renna út.

Hinn 24 ára gamli Hallgrímur æfði með KR á dögunum en hann var einnig orðaður við Val og ÍBV.

Hallgrímur Mar hefur verið lykilmaður hjá KA undanfarin ár en hann skoraði níu mörk í fyrstu deildinni í sumar og var valinn í lið ársins.

Hallgrímur hefur spilað með KA í fimm ár en hann er uppalinn hjá Völsungi.
Athugasemdir
banner
banner
banner