Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fös 17. október 2014 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Rudi Garcia: Roma mun vinna Seríu A
Rudi Garcia
Rudi Garcia
Mynd: Getty Images
Rudi Garcia, þjálfari AS Roma á Ítalíu, segir að liðið komi til með að standa uppi sem sigurvegari í Seríu A.

Leonardo Bonucci skoraði sigurmarkið fyrir ítalska meistaraliðið Juventus er liðið mætti AS Roma í hörkuleik á dögunum en Juventus er með þriggja stiga forskot á toppnum.

Það var mikið sem átti sér stað í leik liðanna og fengu til að mynda Alvaro Morata og Kostas Manolas að líta rauða spjaldið en Garcia segist viss um að Roma taki titilinn af Juventus þetta árið.

,,Ég var stoltur af leikmönnum mínum í þessum leik. Þeir sýndu karakter og fengu mig til að sjá að við erum í raun og veru með sterkara lið en Juventus. Ég get sagt það að við komum til með að vinna ítölsku deildina, við getum þetta," sagði Garcia.
Athugasemdir
banner
banner