Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 17. október 2014 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Þjálfara vantar hjá meistaraflokk Skallagríms
Mynd: Aðsend
Meistaraflokkur Skallagríms í Borgarnesi leitast eftir því að ráða til sín metnaðarfullan þjálfara fyrir næsta keppnistímabil.

Viðkomandi þarf að hafa reynslu af knattspyrnu hér á landi og geta hafið störf í janúar.

Knattspyrnudeild Skallagríms ætlar að setja aukinn kraft í starf meistaraflokks félagsins og er ráðning nýs þjálfara liður í þeim áætlunum.

Reynsla af þjálfunarstörfum er æskileg en spilandi þjálfari er einnig kostur sem við ætlum að skoða.

Áhugasömum er bent á að senda umsókn á [email protected].
Athugasemdir
banner
banner