Leikmenn Crystal Palace urðu furðulostnir í vikunni þegar knattspyrnustjórinn Neil Warnock heimtaði að fá að stjórna tónlistinni á meðan leikmenn voru í ræktinni.
Warnock er ekki aðdáandi tónlistarinnar sem leikmenn hlusta á og hann ákvað að setja nokkra gamla slagara í gang.
Warnock er ekki aðdáandi tónlistarinnar sem leikmenn hlusta á og hann ákvað að setja nokkra gamla slagara í gang.
,,Leikmennirnir voru með háværa tónlist í gangi og ég sagði 'Come on strákar, hlustum á alvöru tónlist," sagði Warnock.
,,Ég setti iPadinn minn í gang. Fyrst var boðið upp á Rainy Night in Georgia. Hvað næst? Barbra Streisand með The Way We Were. Oh, þvílíkur söngvari! Síðan var það Van Morrison með 'Have I Told You Lately'. Ég á mína mjúku hlið."
Hér að neðan má hlusta á lögin sem Warnock spilaði. Dæmi nú hver fyrir sig.
Athugasemdir