Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. mars 2024 13:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andrea Rán að ganga í raðir FH
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir.
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir er að ganga í raðir FH samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Fleiri félög höfðu áhuga á henni en hún er búin að velja FH.

Hún lék síðast á Íslandi árið 2021 en það sumarið hélt hún frá uppeldisfélaginu Breiðabliki til Houston Dash í Bandaríkjunum.

Í kjölarið lék hún svo með tveimur félögum í Mexíkó. Fyrst Club America og svo Mazatlan seinni hluta síðasta árs. Bæði leika í Liga MX deildinni, efstu deild.

Andrea er 28 ára miðjumaður sem á að baki tólf A-landsleiki og var síðast í landsliðshópnum haustið 2021. Í þessum tólf leikjum hefur Andrea skorað tvö mörk.

Við skipti sín til félaga vestanhafs og veruna þar öðlaðist Andrea fullt af fylgjendum á samfélagsmiðlum og er t.a.m. með 125 þúsund fylgjendur á Instagram.

Á ferli sínum hefur Andrea leikið með Breiðabliki, háskólaliði University of South Florida, franska liðinu Le Havre, Houston Dash, Club America og svo Mazatlan.

FH var spútniklið Bestu deildarinnar í fyrra og endaði í sjötta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner