Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. mars 2024 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Auðvitað að reyna að framlengja við miðvörðinn mikilvæga
Tosin Adarabioyo.
Tosin Adarabioyo.
Mynd: Getty Images
Marco Silva, stjóri Fulham, er staðráðinn í að halda varnarmanninum Tosin Adarabioyo hjá félaginu.

Adarabioyo hefur átt flott tímabil með Fulham en hann verður samningslaus í sumar.

Þessi 26 ára gamli miðvörður hefur meðal annars verið orðaður við Liverpool en Silva vonast til að halda honum í herbúðum Fulham.

„Ég myndi elska það," segir Silva. „Það eru þrír lykilmenn hjá okkur að verða samningslausir; hann, Bobby (De Cordova-)Reid og Kenny (Tete). Þetta eru þrír leikmenn sem við viljum halda hjá félaginu."

„Tosin er gríðarlega mikilvægur. Auðvitað höfum við verið að reyna að framlengja við hann. Vonandi fáum við fréttir af honum fljótlega."
Athugasemdir
banner