Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 18. mars 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
„Hvernig er Mainoo ekki í hópnum?“
Mynd: Getty Images
Á dögunum opinberaði Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, hóp sinn fyrir verkefnið í mars en þar var enginn Kobbie Mainoo, þrátt fyrir að hafa spilað frábærlega síðustu mánuði.

Mainoo hefur unnið sér inn fast sæti á miðsvæði United og var talið að hann væri í næsta landsliðshópi Southgate.

En það var ekki svo. Southgate útskýrði á blaðamannafundi að best væri að fara ekki of geyst í hlutina og leyfa Mainoo að þróa leik sinn betur.

Mainoo átti enn eina stórkostlegu frammistöðuna er United vann Liverpool, 4-3, í 8-liða úrslitum enska bikarsins í gær og velti sparkspekingurinn Ian Wright fyrir sér hverju Mainoo væri ekki í hópnum.

„Hvernig er Kobbie Mainoo ekki í þessum hóp? Roy, hvernig er Kobbie Mainoo ekki þarna? Í alvöru? Maðurinn var ótrúlegur í gær,“ sagði Wright.

Mainoo hefur komið við sögu í 21 leik í öllum keppnum og skorað tvö mörk á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner