Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 18. mars 2024 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu öll mörkin úr mögnuðum sigri Man Utd á Liverpool
Mynd: Getty Images
Manchester United kom sér í undanúrslit enska bikarsins með því að vinna hádramatískan 4-3 sigur á Liverpool eftir framlengingu á Old Trafford.

United-liðið spilaði frábæran fótbolta í leiknum og var með öll völd stærstan hluta fyrri hálfleiks.

Scott McTominay skoraði fyrsta markið en góður kafli Liverpool undir lok hálfleiksins dugði til að snúa við taflinu. Alexis Mac Allister jafnaði metin áður en Mohamed Salah kom Liverpool yfir.

Antony, sem hafði aðeins gert eitt mark á tímabilinu fyrir leikinn, jafnaði metin á 87. mínútu og kom United í framlengingu.

Í framlengingunni kom Harvey Elliott Liverpool aftur í forystu en Marcus Rashford og mark frá Amad Diallo í uppbótartíma kom United í undanúrslitin.

Hægt er að sjá öll mörkin í lýsingu Gumma Ben í spilaranum hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner