Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. mars 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Þrír leikmenn Liverpool meiddust í gær
Mynd: EPA
Þrír leikmenn Liverpool kvörtuðu yfir eymslum í líkamanum eftir 4-3 tap liðsins gegn Manchester United á Old Trafford í gær en þetta staðfesti Jürgen Klopp. stjóri félagsins, eftir leikinn.

Liverpool datt út úr bikarnum eftir dramatíska endurkomu United í framlengingu.

Þeir Cody Gakpo, Darwin Nunez og Luis Díaz voru allir að glíma við meiðsli eftir leikinn.

Nunez lék allan leikinn á meðan Díaz fór af velli undir lok framlengingar. Gakpo kom inn af bekknum í leiknum, en nú er landsleikjaverkefni framundan og vonast Klopp til þess að þeir sleppi við frekari meiðsli.

„Núna fara strákarnir í landsleikjatörnina. Við vonum að þeir komi heilsuhraustir til baka. Lucho [Díaz] fann til í nára, Darwin aftan í læri og Cody snéri upp á ökklann. Þeir spila aftur eftir fjóra eða fimm daga. Þetta er klikkun, en vonandi náum við að klára tímabilið með stæl,“ sagði Klopp eftir leikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner