Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. september 2017 15:30
Magnús Már Einarsson
ÍA stofnar meistaraflokksráð - Gamlar kempur í ráðinu
Þórður Guðjónsson er í nýju meistaraflokksráði ÍA.
Þórður Guðjónsson er í nýju meistaraflokksráði ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Þór Þórðarson.
Stefán Þór Þórðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Þegar tvær umferðir eru eftir í Pepsi-deild karla bendir allt til þess að ÍA sé á leið niður í Inkasso-deildina. Tímabilið hefur verið erfitt hjá Skagamönnum sem eru í botnsæti Pepsi-deildarinnar með 15 stig.

Stjórn knattspyrnufélags ÍA, KFÍA, hefur ákveðið að setja á laggirnar meistaraflokksráð karla fyrir komandi ár. Mörg félög á Íslandi eru með sérstök meistaraflokksráð en það hefur ekki verið til staðar hjá ÍA.

Í nýja meistaraflokksráðinu eru meðal annars fyrrum atvinnu og landsliðsmennirnir Haraldur Ingólfsson, Stefán Þór Þórðarson og Þórður Guðjónsson eins og sjá má hér að neðan.

Yfirlýsing á heimasíðu ÍA
Kæru stuðningsmenn,

Gengi meistaraflokks karla hefur ekki verið samkvæmt væntingum í sumar og staða félagsins í Pepsi-deildinni er erfið. Á sama tíma erum við með ungt og efnilegt lið sem hefur gríðarlega mikinn metnað til að gera góða hluti á komandi árum.

Til að styrkja bakland meistaraflokks karla hefur aðalstjórn knattspyrnufélags ÍA (KFÍA) ákveðið setja á laggirnar meistaraflokksráð karla. Hlutverk ráðsins er að eiga reglubundin samskipti við þjálfara meistaraflokks karla og 2. flokk karla um markmið og árangur. Hafa ráðgefandi hlutverk í leikmannamálum og þjálfaramálum. Einnig verður hlutverk ráðsins að stuðla að því að gildi KFÍA verði í hávegum höfð en þau eru; Metnaður – Vinnusemi – Þrautseigja – Virðing – Agi. Aðalstjórn KFÍA hefur fengið reynslumikla einstaklinga til að taka þátt í starfi meistaraflokksráðs en allt eru þetta fyrrverandi leikmenn meistaraflokks með mikla reynslu að baki m.a. sem atvinnumenn í erlendum liðum. Þetta eru Viktor Elvar Viktorsson formaður en hann situr jafnframt í aðalstjórn KFÍA, Haraldur Ingólfsson, Sigurður Sigursteinsson, Stefán Þór Þórðarson og Þórður Guðjónsson.

Meistaraflokksráð mun vera aðalstjórn ráðgefandi í ofantöldum málum og styðja við þjálfarateymi og leikmenn meistaraflokks karla. Vonandi er þetta fyrsta skrefið í að KFÍA standi að nýju undir því heiti að vera stórveldi í íslenskum fótbolta.
Athugasemdir
banner
banner