Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   þri 18. október 2016 12:31
Jóhann Ingi Hafþórsson
Dóra María: Ég bý yfir flugfreyju reynslunni
Dóra María
Dóra María
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dóra María Lárusdóttir, miðjumaður Vals og landsliðsins var spennt þegar spjallað var við hana í Kína en þar er hún ásamt landsliðinu á alþjóðlegu móti sem er partur af undirbúningi liðsins fyrir EM í Hollandi, næsta sumar.

Hún er ánægð með aðstæðurnar á vellinum og þar í kring.

„Þetta er mjög flottur völlur og aðstæðurnar í kring, þetta er öðruvísi gras en við erum vanar en við verðum búin að venjst því eftir tvo daga þegar það er fyrsti leikur."

„Maður vissi ekki alveg við hverju maður átti að búast, maður var búinn að heyra misjafnar sögur en hótelið er fínt og það gengur vel að venjast þessu."

Liðið þurfti að aðlagast því að snúa við sólarhringnum eftir langt ferðalag en Dóra María á ekki í erfiðleikum með það enda hefur hún unnið sem flugfreyja og er því vön ýsmu.

„Ég hef aldrei átt í vandræðum með svefn svo ég átti ekki erfitt með að ná mér á rétt strik en sumar voru í einhverjum vandræðum. Ég bý yfir flugfreyju reynslunni þar sem ég var að fljúga með Icelandair frá Íslandi til Ameríku, það er mjög góð reynsla þar," sagði Dóra María.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner