Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mið 18. október 2017 09:00
Mist Rúnarsdóttir
Wiesbaden
Glódís: Pressan er á Þýskalandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við fáum hérna tvo hörkuleiki á útvelli og mikilvægt fyrir okkur að fá eitthvað út úr þessum leikjum. Bæði stig og góða frammistöðu,“ sagði landsliðskonan Glódís Perla Viggósdóttir aðspurð um komandi verkefni Íslands í undankeppni Heimsmeistaramótins. Ísland mætir Þýskalandi á föstudag og Tékklandi næstkomandi þriðjudag.

Við hverju má búast?

„Tveimur hörkuleikjum. Við erum að fara spila á móti Þýskalandi sem er eitt besta lið í heimi og búið að vera í mörg ár. Er með algjöra hefð og allt á baki sér. Á móti komum við, litla Ísland. Maður vill reyndar ekki segja litla Ísland en þær eru líklegri en við og með pressuna á sér. Svo spilum við á móti Tékkum sem eru búnar að vera á uppleið og eru með gott lið. Það verður bara jafn leikur og mjög spennandi verkefni.“

Lið Þýskalands hefur verið yfirburðalið í heimsboltanum. Sigursælt á Evrópu- og Heimsmeistaramótum og er í öðru sæti heimslistans.
Á Ísland einhvern möguleika gegn svo sterku liði?

„Ef við mætum til leiks og gerum allt sem við leggjum upp með þá hef ég fulla trú á að við getum gert góða hluti í þessum leik. En við verðum allar að vera 100% annars verður þetta mjög erfitt fyrir okkur,“ sagði Glódís meðal annars um andstæðingana.

Glódís hefur verið í eldlínunni með nýja félaginu sínu Rosengård og mætir því til leiks í góðu standi. Henni líður vel hjá nýja klúbbnum og hefur gaman af því að takast á við nýjar áskoranir.

„Mér líður mjög vel og þetta er áskorun fyrir mig. Það er mikið búið að vera í gangi síðan ég kom og svona öðruvísi og bara gott fyrir mig að takast á við þetta.“

Nánar er rætt við landsliðsmiðvörðinn öfluga í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner