Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. desember 2014 19:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Daily Mail 
Hazard að framlengja hjá Chelsea
Eden Hazard.
Eden Hazard.
Mynd: Getty Images
Eden Hazard er nálægt því að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea sem mun skuldbinda hann félaginu til ársins 2019.

Þessi frábæri leikmaður gekk í raðir Chelsea árið 2012 og hefur verið lykilmaður í liðinu síðan þá.

Nýji samningurinn mun færa Hazard 200.000 pund í vikulaun, auk þess sem þetta mun draga úr áhuga PSG á leikmanninum.

Hazard, sem er 23 ára gamall, hefur skorað 29 mörk í 85 leikjum með Chelsea. Þar af hafa sex komið í 16 leikjum á yfirstandandi leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner